Batnandi mönnum...
...er best að lifa segir orðatiltækið og þykir mér mikið til þess koma. Mönnum batnar víðsvegar í heiminum og nú síðast var Davíð Oddsson að batna um allan helming. Davíð sagði í viðtali við RÚV sem flutt var í hádeginu í dag að hann teldi rétt að draga umsókn Íslands um setu í öryggisráði S.Þ. tilbaka. Kosningabarátta væri einfaldlega of kostnaðarsöm og líkurnar á árangri ekki nógu miklar.
Þessu fagna ég og það er mjög gaman að heyra menn fara að hafa sterkari og opinberari skoðanir um leið og þeir hafa tilkynnt minnkaða ábyrgð í framtíðinni. Það sama má segja um Össur Skarphéðinsson. Hann hefur farið á kostum eftir að hann tapaði formannsslagnum og skrifar nú hárbeitta gagnrýnispistla gegn hverjum sem á það skilið, jafnvel þó um flokkssystkin sé að ræða.
Spurning hvort ég yrði skemmtilegri, myndi ég afsala mér föðurhlutverkinu og hætta í skóla? Fylgnin á milli ábyrgðar og leiðinda virðist allavega sterk í stjórnmálunum.

1 Comments:
jæja ertu bara stop. það er allveg rétt batnandi mönnum er best að lifa..... búin að lesa það
Post a Comment
<< Home