Útlendingar neyðast til að hlusta á táknmálsfréttir í Danmörku
Það kemur fram í vefútgáfu danska dagblaðsins Politiken að DR (Danmarks Radio) hafi ákveðið að skera niður. Það fyrsta til að fjúka eru fréttir á erlendum tungumálum. Þykir mér leitt að grípa þurfi til slíkra aðgerða, enda hlýtur ein af forsendum skilnings útlendinga á nýju samfélagi að vera möguleikinn til að fræðast um það. Ég þekki ekki til fjármála danska ríkisútvarpsins og ætla því ekki að bölsótast út í stofnunina sem slíka. Viðbrögð talsmanns Dansk Folkeparti þykja mér þó eiga skilið bæði böl og sót. Hann segir að þeir útlendingar sem vilji fræðast um danskt samfélag hafi til þess margar leiðir, þeir geti farið á bókasöfn eða skráð sig í íþróttafélög. Ennfremur segir hann að aðgerðin gæti fengið útlendinga til að taka aukinn þátt í samfélaginu.
Hvaða útlendingur er það sem hugsar með sér:,,Ég þarf ekkert að fara út, ég get horft á fréttir á mínu tungumáli og það nægir mér.” Ég myndi einmitt halda að því meira framandi sem allt virðist, þeim mun erfiðara er að fá sig til að stíga skrefið inn í samfélagið. Ef það er eitthvað sem segir mann velkominn, t.d. að geta fengið fréttir af landinu sem maður býr í en á erfitt með að skilja, auðveldi það þetta sama skref.
Vinstri rótæklingar fagna þessari ákvörðun líka. ,,Frábært, þetta sendir þau skilaboð til innflytjenda að þeir séu orðnir Danir.”
Rosalega ætti ég erfitt með að líta á mig sem Mongóla ef ég hefði ekki möguleika á að fræðast um Mongólskt samfélag öðruvísi en að fara á bókasafnið og kenna mér sjálfur mongólsku og um mongólskt samfélag. Fyrst þyrfti ég nú að sækja um bókasafnsskírteini á mongólsku og ég gæti vel trúað því að það eitt væri mér ofviða.
Útlendingapólitíkin í Danmörku er auðvitað að verða ansi hallærisleg. Menn reyna annað hvort að vera siðferðilega réttir rasistar eða rasistar og mannvinir bæði í einu. Kannski er eitt vandamálanna það að stór hluti Dana vill einfaldlega ekki tala við útlendinga, nákvæmlega eins og þekkist á mörgum frystihúsum og öðrum vinnustöðum sem bjóða upp á nóg af lausum láglaunastöðum. Ef Norðmenn vilja ekki tala við mig þá vil ég ekki tala við Norðmenn og ef Danir vilja ekki tala við Araba vilja Arabar örugglega ekki tala við Dani.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home