Tuesday, July 11, 2006

Það er alltaf eitthvað fleira að koma í ljós í svona... rannsóknum

Fyrirsögn þessarar greinar er því miður ekki ljóðræn smíði höfundar. Hún er dæmi um frábæra málsnilld Ragnheiðar Guðfinnu Guðnadóttur, dagskrárgerðarmanns í Íslandi í Bítið. En við skulum líta framhjá þessar skemmtilegu setningu og líta á umfjöllunarefnið.

Þessi frétt birtist í fréttablaðinu í dag:


Nú velti ég fyrir mér: Gæti verið að þeir sem hafa meiri kviðfitu borði að jafnaði óhollari mat? Getur kviðfita í raun orsakað eitthvað?

Ég tel mig ekki þurfa að svara þessum spurningum enda svörin að mestu augljós. Jafnframt benda rannsakendur á að kviðfita spái betur fyrir um hættuna á ristilkrabba en heildarþyngd. Þetta er punktur sem ég hefði bara getað bent þeim á í gegnum síma. Það þarf engar rannsóknir til að sjá það að heildarþyngd er verulega háð hæð. Svo lengi sem hæð orsakar ekki krabbamein eru þetta sjálfsögð sannindi, ekki rannsóknarefni. Kviðfitu má mæla sem hlutfall af þyngd, hæð o.s.frv. Ég hef þó ekki lesið skýrslu rannsakenda, aðeins fréttina, en hún er a.m.k. sett þannig fram að maður myndi ætla að kviðfita orsakaði eitthvað fleira en hugsanlega bakverk og léleg hné. Það er kjánalegt!

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

hah

3:45 PM  

Post a Comment

<< Home