Sunday, July 09, 2006

Penn & Teller's Bullshit



Ég ætla bara að halda auglýsingamennskunni áfram. Um daginn var mér bent á þættina Penn & Teller's Bullshit. Þar eru sjónhverfingamennirnir Penn og Teller að fjalla um ýmis konar kjaftæði (eða bullshit) s.s. vafasamar lækningaaðferðir, kukl og galdra, Biblíusögur, sköpunartrú o.fl.

Þrátt fyrir að Penn sé hrokagikkur með leiðinlega rödd og Teller sé góðlegur lítill kall sem segir aldrei neitt, eru þættirnar afar skemmtilegir. Þeir eru svo sem ekki að sanna eitt eða neitt. Þeir velja sína sérfræðinga sem eru sammála sér og finnna rugludalla sem eru tilbúnir að koma með kenningar sínar eða undarlega atvinnu í sjónvarpið. En aðalatriðið er að mínu mati það að þeir kenna gagnrýna hugsun innan ramma afþreyingarsjónvarps. Fyrir þá sem fíla ekki málleysingja og hrokagikki er a.m.k. hægt að skemmta sér yfir öllum rugludöllunum sem koma fyrir í þáttunum.

Hér má nálgast marga af þáttunum með torrenttækninni, og hér eru 3 heilir árgangar af þáttunum saman í einum pakka. Árgangarnir 3 er heil 6.7 gb en ef notað er gott torrentforrit (t.d. bitcomet) er hægt að velja hverja af þessum þáttum maður vill hala niður eftir efni þeirra.

Góða skemmtun!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home