Sunday, July 09, 2006

Endurspeglun þjóðarinnar?

Ég horfði á sjónvarpsþáttinn óþekkt í dag, eins og ég geri gjarnan í vinnunni á laugardagskvöldum. Þar var, eins og eðlilegt þykir í þætti um jafnréttismál, verið að ræða um jafnréttismál. Einn dagskrárliðurinn fjallaði um konur í fjölmiðlum og voru þrír fulltrúar þriggja ritstjórna mættir til að ræða um efnið. Staða kvenna í fjölmiðlum er langt frá því að vera eftirsóknarverð og kann ég ekki að skýra það sérstaklega.

Fulltrúi ritstjórnar morgunblaðsins lagði mikla áherslu á að auka vægi kvenna á blaðinu, enda ættur ritstjórnir að endurspegla þjóðina. Þetta hafa margir aðrir talað um í ýmsu samhengi innan jafnréttisbaráttunnar. Þetta finnst mér kjánalegur punktur.

Ef blaðamenn ættu að endurspegla þjóðina hlýtur að vanta gríðarlega mikið af verkamönnum og iðnaðarmönnum í stéttina. Sömuleiðis vantar þangað aldraða og unglinga. Af hverju eru engir sjómenn blaðamenn? Að ráða konur til að endurspegla þjóðina er kjánalegt. Að ráða konur af því að þær eru hæfir blaðamenn er hagkvæmt og sniðugt.

Ef málin standa þannig að eftirsókn í blaðamennsku er jafn mikil á milli kynja er mjög óeðlilegt að skuli þar ekki vera fleiri konur að finna. Óháð því hvernig eftirsókninni í störf er háttað er óeðlilegt hver ábyrgð kvenna í fjölmiðlum er að jafnaði. En að blaðamenn þurfi að endurspegla þjóðina er bara kjánalegt. Fjölmiðlafólk þarf fyrst og fremst að vera hæft og á að draga upp (ekki endurspegla) mynd af því sem gerist í samfélaginu. Bæði karlmenn og konur geta sagt okkur frá stýrivaxtahækkun seðlabankans að því gefnu að þau skilji hvað stýrivaxtahækkanir eru. Ég tel að meðalmaðurinn skilji það hins vegar ekki eða illa.

Það má bæta því við að ég er sammála Magnúsi Kristjánssyni (kennara mínum) um það að notkun orðsins endurspegla er asnaleg. Að spegla væri nær lagi. Að endurspegla hlýtur að vera að spegla speglun. Að endurspegla er enska (REflect) í rangri notkun á Íslandi.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home